Já góða kvöldið gott fólk

Jæja, þá er kominn 10. júní...bara allt að gerast...sumarið varla byrjað og maður er strax farinn að sjá fyrir endann á því



Tíminn líður náttúrulega fáránlega hratt....því til stuðnings get ég nú sagt ykkur að hún Karen Mjöll okkar er 6 mánaða í dag!!


6 mánuðir síðan ég kúrði með henni og Sigurgeiri á Hreiðrinu fyrsta dag Karenar utan bumbunnar

Oooh, þetta var svo yndislegt....og er í dag bara það yndislegasta sem hugsast getur - foreldrahlutverkið
En já...ég ætti kannski að geyma væmnina og losa um hana annars staðar

hehe
Ég get svo sagt ykkur pínu fréttir

Ég er byrjuð í skóla





Já, sumarönnin byrjaði í dag og ég er bara búin að glósa á fullu
Ég er semsagt að taka 6 einingar á sumarönn í fjarnámi við Fjölbraut við Ármúla

Er í líffæra-og lífeðlisfræði og heilbrigðisfræði

Fer svo í fjarnám í haust frá VMA og tek þá um 15 einingar auk 6 eininga í dreifnámi (blanda af kvöldskóla og fjarnámi) frá Fjölbraut í Breiðholti





Jebb, pínu ruglingslegt og frekar mikið að gera og gerast!!

Haldið ekki að skvísan ætli bara að taka sjúkraliðabrautina 1, 2 og 20....næ líklegast að klára allt bóklega næsta vor ef vel gengur

Verða reyndar eftir 2 bóklegir áfangar en þeir eru kenndir með verklegu þannig að það er í lagi

Vona bara að þetta gangi upp í haust eins og var búið að setja upp núna í maílok

Verð að krossa fingur og bið ykkur um að gera það með mér

Þannig að það er allt að gerast þessa dagana....mjöööög skrýtið að vera farin að glósa og læra eitthvað...híhí...hef ekki gert það hrikalega lengi!! Og hvað þá að vera í fjarnámi og allt fer fram í WebCT

Svo er sumarönnin svo stutt...bara 8 vikur


Þannig að þetta verður strembið og annar áfanginn sem ég er í ekkert alveg sá auðveldasti

En ég ætla mér bara að rúlla þessu upp....og hana nú!!!
Svo líður að því að Sigurgeir fari í sumarfrí

Jeiiiiiii

Tekur 2 vikur núna og vinnur svo 2 vikur og fer aftur í 2 vikna frí

Og eftir það frí er kominn ágúst!!!!!!! Sagði ykkur það...sumarið er bara að verða búið! Fáránlegt!
En það er nóg að gera....búið að bjóða okkur í eina útskrift (sem er búin), eina stúdentsveislu og þrjú brúðkaup!!!! Hvað er málið með það??? Híhíhí...en það er náttúrulega bara gaman að vera boðinn í svona viðburði....erum voðalega ánægð með það

En því miður getum við ekki farið í allt saman. Við förum öll 3 í brúðkaupið hennar Sólrúnar í júlí, en svo förum við Karen Mjöll bara tvær í brúðkaupið til Péturs og Siggu í ágúst

Sigurgeir er rétt farinn að vinna þarna

En þetta verður bara gaman
Jæja, nóg af röfli frá mér....allavega í bili
Kveð að sinni,
Sunna Brá.